BORDER COLLIE
Border Collie eru milli stórir léttbyggðir smalahundar ýmist snögghærðir eða með aðeins þykkari og lengri feld.
Þeir koma í öllum litum en alltaf með hvítum merkingum (kragi, bringa, fætur, skottendi, blesa t.d.). Óæskilegt þykir þó að hafa lit þeirra ríkjandi hvítan. Eyru þeirra eiga að vera vakandi og hreyfanleg og meiga ýmist standa alveg upp eða vera "brotin" en aldrei lafa alveg niður.
Border Collie hefur í gegnum tíðina fyrst og fremst verið ræktaður útfrá getu sinni til að smala fé, enda eru þar engir aðrir hundar sem hafa tærnar þar sem þeir hafa hælana í þeim efnum. Ræktunarstefna þessi hefur gert það að verkum að aðeins klárustu hundarnir hafa verið notaðir til undaneldis og þ.a.l. hefur Border Collie framúrskarandi vinnueiginleika á hinum ýmsu sviðum.
Þeir eru mjög mikið notaðir t.d. í Leit að týndu fólki, hvort sem er í snjóflóðaleit, víðavangsleit eða rústaleit. Einnig skara þeir frammúr þegar kemur að hundafimi og Flyball.
Þar sem Border Collie er fyrst og fremst vinnuhundur þarf hann að búa hjá fólki sem sinnir þörfum hans til vinnu. Þetta þýðir þó ekki að fólk þurfi stöðugt að vera vinna með hundinn eða fara í margar göngur á dag. Fólk þarf bara að vera meðvitað um þarfir hundsins. Búa til verkefni handa honum, virkja heilann en passa líka að gera ekki of mikið og að hundurinn verði ekki of ýtinn á hreyfingu. Hinn fullkomni Border Collie er óþrjótandi vinnukraftur þegar á þarf að halda en svo rólegur og góður heimilishundur þegar inn er komið.
Border Collie er sérlega fljótur að læra, þá bæði þá hluti sem honum eru kenndir og einnig hluti sem hann finnur upp sjálfur sem ekki alltaf er jákvætt. Því er mjög gott að eigendur Border Collie hugsi svolítið fram í tímann, sérstaklega á uppvaxtartímabilinu til að koma í veg fyrir að hlutir og húsgögn verði ekki fyrir óþarfa óhöppum.
Þegar velja á hvolp skal huga vel að heilbrygði foreldra, skapgerð og vinnueiginleika. Heilbrygður skapgóður hundur er góður félagi til margra ára.
Eðlilegur lífaldur Border Collie er á bilinu 10-17 ára en að meðaltali ná þeir 12 ára aldri. Meðal aldur hundategunda af svipaðri stærð er venjulega 12-13 ár. Það er ekki óeðlilegt fyrir Border Collie að ná 18+ árum, sem er vel framyfir meðaltalið.
Helstu dánarorsakir Hjá BC eru krabbamein (23,6%), hár aldur (17,9%) og heilablóðfall (9,4%).