PÚKI - ISHC Morastaða Kári16.02.2018
Besti hundur í heimi er fallinn frá. Eftir mikla vöðvarýrnun í líkamanum og líklega krabbamein í lungum gafst líkaminn upp á því að hleypa Púka á fætur og tekin var ákvörðun um að leifa honum að kveðja á friðsælan máta. Púki er fæddur 18.september 2003 og kemur frá Maríu og Orra á Morastöðum í kjós. Hann er undan ISCH Bashores Practical Magic HIT og ISCH CIE Heimsenda Hug HIT. Púki er ákveðinn karakter, yfirvegaður í skapi og sanngjarn í samskiptum við aðra hunda. Hann er ávallt til í að vinna fyrir mann og leika, en það besta sem hann veit er að fá að smala.... næst best er svo að leika með bolta, en það er nokkuð sem hann fær að gera mun oftar en hið fyrra. Púki hefur verið þjálfaður í ýmislegt í gegnum tíðina og ekkert mál er að kenna honum hvað sem er. Hann lauk B-útkallsprófi í snjóflóðaleit árið 2011 og var á útkallslista hjá Leitarhundum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í eitt ár. Hann hefur einnig tekið þátt í ýmiskonar uppákomum sem snerta hunda þar sem hann hefur sýnt listir sínar fyrir áhorfendur víðsvegar að. Púki hefur einnig tekið þátt í hundasýningum, þar sem hann hefur náð titlinum ISCH (Íslenskur meistari) og einnig hefur hann fengið allt sem þarf til að verða C.I.B. (Alþjóðlegur meistari) en hann á eftir að fá þann titil staðfestan hjá FCI. Púki er ofboðslega barngóður hundur og finnst aldrei leiðinlegt að fá góða krakka í heimsókn til að leika með. Hann hlíðir þeim vel og hefur tekið þátt í keppni ungra sýnenda. Það má eiginlega segja að hann sé eins og hugur manns því hann virðist alltaf skilja hvernig manni líður og hvað maður er að meina.
Púki hefur verið augnskoðaður 10 ára frír af arfgengum augnsjúkdómum og er enn við hesta heilsu að öllu leiti mjaðmamyndaður með A+A mjaðmir. Hann hefur einnig staðist smalaeðlispróf, sem og skapgerðarmat án athugasemda. |
ENGLISH
translation pending
translation pending