Fæddur hvolpur undan Soul og Viktor
Ég mun að öllum líkindum (ekki fullkomlega ákveðið) vera að leita að góðum meðeiganda að litla gullmolanum sem fékk þann heiður að vera einkabarn í 3. og síðasta gotinu hennar Soular. Ef hann verður eitthvað líkur foreldrum sínum verður hann ákaflega leikglaður en einstaklega ljúfur fjölskylduhundur sem elskar allt og alla. Skapgerðin í þessum foreldrum er alveg yndislegt og umtöluð.
Meðeigandi mun hafa og sjá um hundinn að öllu leiti eins og sinn eigin en borgar ekki fyrir hann og hann verður skráður í eigu ræktanda. Meðeigandi þarf að sjá um að halda hundinum í góðu líkamlegu formi, gefa honum topp fóður og viðhalda allri reglulegri umhirðu eins og flókalausum feldi, árlegum dýralæknaheimsóknum og því sem hundurinn kann að þurfa á að halda. Ræktandi sér um allan kostnað er tengist heilsufarsskoðunum sem eru krafa fyrir ræktunardýr og á ræktandi allan ræktunarrétt undan hundinum verði hann hæfur til undaneldis.
Frekari upplýsingar gef ég í gegnum síma: 867-6053 eða í gegnum tölvupóst.
Hann mun einungis afhendast á heimili þar sem aðstæður eru til fyrirmyndar og leifi ég mér að vanda valið vel þegar kemur að því að finna honum topp fjölskyldu. Ég mun frekar hafa hann áfram hérna heima hjá mér en að senda hann einhvert þar sem ég er ekki 100% sátt við aðstæður og fjölskyldu.