Hvolparnir hafa nú allir opnað augun og eru orðnir alveg mega sætir!
Soul er dugleg eins og alltaf að hugsa um börnin sín og mjólkar fyrir herdeildina.... eða alla fjóra. Annað fréttnæmt er það að Orka ákvað loksins að byrja lóða. Planið er að para hana og Púka þegar hún er tilbúin. Þetta er fyrirtaks tími fyrir Orku að koma með hvolpa þar sem hún er á "frísumri" frá Leitarhundaúttektum sem þíðir að hún þarf ekki að taka neitt próf í sumar. Hún fer næst í endurmat á næsta ári. Þannig að hún hefur góðan tíma til að ganga með og jafna sig eftir got án þess að vera pressuð á æfingar og í próf. Hún mun nú samt ekki taka sér lengra frí heldur en nauðsynlegt er þar sem hún hefur mikla unun af því að finna fólk. Nú er bara að krossa fingur, vona að pörun heppnist og að gömlu sundmennirnir hans Púka séu enn starfi sínu vaxnir ;)
0 Comments
Leave a Reply. |