Ég fékk staðfest í dag að von er á Ensk Cocker Spaniel goti hjá JarðOrku ræktun núna 9.ágúst 2015.
Foreldrar eru Soul og Viktor. Hvolparnir verða afhentir um 10 vikna aldur og þá bólusettir, ormahreinsaðir, örmerktir og með ættbók frá Hundaræktarfélagi Íslands. Hvolpahandbókin eftir Sif Traustadóttur dýralækni og atferlisfræðingi fylgir með hverjum hvolpi. Ég legg mikla áherslu á að hvolparnir fái góða umhverfisþjálfun til að búa þá undir lífið. Þeir munu búa við lifandi umhverfi hjá okkur og ætlast er til að nýjir eigendur haldi áfram að kynna þá fyrir því sem heimurinn hefur uppá að bjóða. Afhending verður í lok október. Áhugasömum er bent á að hafa samband hér, eða í síma 867-6053 (Dóra) og gefi þá góðar upplýsingar um heimilisaðstæður, reynslu af hundum og plön fyrir nýjan hvolp á heimilið. Ég áskil mér rétt til að selja ekki hverjum sem er hvolp.
0 Comments
Fyrsta JarðOrku E.cocker spaniel gotið er planað árið 2015. Til að sjá meir um planaða pörun smellið hér.
Sorry to say that the mating of Orka and Púki was not successful.
Probably I'll have to find another stud before her next season and really hope that goes well. Soul fór á sína fyrstu sporaæfingu í gær eftir mjög langt frí. Hún fékk nokkuð einfalt spor með 3 vinklum en ca. kílómeters langt yfir mold, möl, mosa og í göngustíg. Ási í Leitarhundum labbaði fyrir okkur og var sporið um klukkustundar gamalt þegar hún rakti það.
Rakti hún sporið eins og hún hefði ekki gert neitt annað í fríinu sínu en að stúdera spor. Ég er gríðarlega ánægð með litla vinnusjúklinginn minn!!
Uppfærsla 31.05.2014
Því miður er Orka tóm og því engir hvolpar væntanlegir. Update 31st of May 2014 Unfortunately Orka has no puppies in board. Finally Orka is having her season again!
The plan is to mate her and Púki together as soon as she is ready. This is a good time for Orka to have puppy's since this is her "summer off" from SAR courses. She will only have to be re-evaluated next year so there is no pressure for her to practice and take tests. She will though return to training as soon as she´s up and ready after her litter has gone exploring the world. I really hope that this mating will be successful so that we can have little Orka's and Púki's running around. If everything goes as planed litter would be expected around the beginning of July. Hvolparnir hafa nú allir opnað augun og eru orðnir alveg mega sætir!
Soul er dugleg eins og alltaf að hugsa um börnin sín og mjólkar fyrir herdeildina.... eða alla fjóra. Annað fréttnæmt er það að Orka ákvað loksins að byrja lóða. Planið er að para hana og Púka þegar hún er tilbúin. Þetta er fyrirtaks tími fyrir Orku að koma með hvolpa þar sem hún er á "frísumri" frá Leitarhundaúttektum sem þíðir að hún þarf ekki að taka neitt próf í sumar. Hún fer næst í endurmat á næsta ári. Þannig að hún hefur góðan tíma til að ganga með og jafna sig eftir got án þess að vera pressuð á æfingar og í próf. Hún mun nú samt ekki taka sér lengra frí heldur en nauðsynlegt er þar sem hún hefur mikla unun af því að finna fólk. Nú er bara að krossa fingur, vona að pörun heppnist og að gömlu sundmennirnir hans Púka séu enn starfi sínu vaxnir ;) Það eru komnir Enskir Cocker Spaniel hvolpar!
Þann 4.apríl 2014 komu í heiminn 4 yndislegir hvolpar. Allir Blue Roan eins og pabbinn, en þetta eru 3 tíkur og 1 rakki alveg eins og í síðasta goti. Þau eiga öll eftir að verða mjög dökk líkt og pabbi sinn þar sem þau voru nánast blá á litinn þegar þau fæddust. Gotið gekk eins og í sögu og Soul er heimsins besta mamma eins og áður. Móðir og hvolpum heilsast mjög vel og voru hvolparnir frá 260g uppí 300g við fæðingu. Áhugasamir kaupendur geta haft samband við Þórdísi í síma 868-9455. Púki, Soul og Orka fóru í augnskoðun í nóvember og eru öll frí af arfgengum augnsjúkdómum. Ég er auðvitað hæst ánægð með þessar niðurstöður. Vonandi mun ég svo vera með Border Collie got með vorinu frá Púka og Orku.
ENGLISH: Púki, Soul and Orka all went for an eye examination in November and where all examined free of hereditary eye diseases. I'm of course thrilled with these results. Hopefully I'll have a Border collie litter next spring from Púki and Orka. |