Ég fékk staðfest í dag að von er á Ensk Cocker Spaniel goti hjá JarðOrku ræktun núna 9.ágúst 2015.
Foreldrar eru Soul og Viktor. Hvolparnir verða afhentir um 10 vikna aldur og þá bólusettir, ormahreinsaðir, örmerktir og með ættbók frá Hundaræktarfélagi Íslands. Hvolpahandbókin eftir Sif Traustadóttur dýralækni og atferlisfræðingi fylgir með hverjum hvolpi. Ég legg mikla áherslu á að hvolparnir fái góða umhverfisþjálfun til að búa þá undir lífið. Þeir munu búa við lifandi umhverfi hjá okkur og ætlast er til að nýjir eigendur haldi áfram að kynna þá fyrir því sem heimurinn hefur uppá að bjóða. Afhending verður í lok október. Áhugasömum er bent á að hafa samband hér, eða í síma 867-6053 (Dóra) og gefi þá góðar upplýsingar um heimilisaðstæður, reynslu af hundum og plön fyrir nýjan hvolp á heimilið. Ég áskil mér rétt til að selja ekki hverjum sem er hvolp.
0 Comments
Leave a Reply. |